140. löggjafarþing — 79. fundur,  28. mars 2012.

stjórn fiskveiða.

657. mál
[23:48]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Mér þykir sérkennilegt þegar hv. þingmaður sem talaði fyrir friði hér í þingsalnum fyrir tveim dögum kemur hingað og hlakkar einhvern veginn yfir því að ég hafi þóst himin höndum tekið með að finna einhverja grein sem var sett inn á netið fyrir mörgum árum. Ég er einfaldlega að reyna að kynna mér málið, forsögu þess, og mér þykir athyglivert að ráðherrann sem hefur staðið að því að búa til þetta mál og hafði á sínum tíma mjög sterkar skoðanir á auðlindagjaldi leggi nú fram mál sem að mínu viti er þvert á þær skoðanir.

Meðal annars vakti ég athygli á því sem fram kemur í þeirri grein, þeirri athugasemd ráðherrans að skattstofn sem einu sinni komi til lækki ekki og komi alltaf til með að hækka og verði viðvarandi. Þetta er almenn athugasemd um skattálagningar sem ég tel eiga fullt erindi inn í umræðuna. Í ljósi þess, eins og ég fór yfir í ræðu minni, að sá hæstv. ráðherra sem þetta sagði meðan hann var formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis hefur, sérstaklega hér í þingsalnum, brýnt okkur, aðra þingmenn, til þess að muna stöðugt og alltaf að við eigum að vera menn til að standa við orð okkar tel ég ástæðu til að sá hv. þingmaður, nú hæstv. ráðherra, fái tækifæri til þess í þinginu að útskýra fyrir okkur hvers vegna hann hafi skipt um skoðun á grundvallaratriðum. Ég tel að í þessari grein birtist skoðanir á grundvallaratriðum, ekki bara einhverjum dægurmálum þess tíma.

Hér lýsir hann því yfir að veiðileyfagjald sé óskynsamlegur og óréttlátur skattstofn. Óréttlátt er að mínu viti og í mínum málskilningi orð sem menn breyta ekki sisona skilningi sínum á gagnvart einhverjum skattstofnum.