140. löggjafarþing — 79. fundur,  29. mars 2012.

stjórn fiskveiða.

657. mál
[00:00]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem fram kom hér áðan, að eðlilegt sé að fram fari umræða í efnahags- og viðskiptanefnd um áhrifin á bankana, ég held að mikilvægt sé að hún fari fram. Þar verður vitanlega varpað ljósi á þær vangaveltur sem hér hafa komið fram, hvort mögulegt sé að ríkið sé með einhverjum hætti skaðabótaskylt eða að samningar séu með þeim hætti að kröfuhafarnir fái sinn hlut bættan. Þetta þarf allt að skýra.

Hvaða áhrif hefur þetta á bankana, þ.e. á stöðu þeirra í dag? Ég velti því fyrir mér áðan, ég fæ ekki séð að það hafi verið metið hvort þetta kunni að hafa áhrif á þá. Eftir því sem maður heyrir hafa bankarnir gjarnan verið að reyna að ná eins miklu og þeir geta af þeim hagnaði sem verður til í fyrirtækjum til að ná upp í þau lán og þær skuldir sem eru hjá þeim, þannig að það kann að verða einhvers konar samkeppni á milli fjármálastofnana og ríkisins um hluta í þeim arði sem hér er verið að tala um — umframhagnaðinn, eins og einhver kallaði það.

Spurt var um aðferðafræðina þegar fyrrverandi hæstv. sjávarútvegsráðherra setti gögn inn á netið til að fá viðbrögð. Ég held að það hafi í rauninni verið til fyrirmyndar í sjálfu sér að fá fram viðbrögð á þau gögn og í anda þeirra orða sem hér eru gjarnan viðhöfð á hátíðarstundum, um opna og gegnsæja stjórnsýslu og allt það sem enginn virðist svo í rauninni hafa áhuga á að fylgja eftir, þá var það alveg til fyrirmyndar að gera það með þeim hætti.