stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Við höldum núna áfram rétt eftir miðnætti að ræða frumvarp til laga um stjórn fiskveiða. Mig langar aðeins að byrja á að fara yfir forsöguna af því að hún tengist allri þeirri orðræðu sem við höfum átt hér í dag og í rauninni á umliðnum missirum og árum. Því er mikilvægt að hafa forsöguna, alla vega grunnatriðin, á hreinu, þ.e. hvernig upphafið á kerfinu var, sem margir vilja síðan detta inn í alls konar frasa um eins og gjafakvóta og að auka þurfi nýliðun o.s.frv. Af hverju var farið af stað inn í þetta aflamarkskerfi sem nú er? Það var út af bráðri nauðsyn. Menn sáu það á sínum tíma, í kringum 1980–1983 þegar kerfið var uppbyggt og mjög erfiðar pólitískar ákvarðanir voru teknar, að allt eins væri líklegt að fiskstofnarnir mundu hrynja. Menn voru að veiða allt að því 480–500 þús. tonn af þorski, fiskstofnarnir voru á niðurleið og taka þurfti ákvörðun um framtíð fiskveiða, ekki ákvörðun sem mundi bara duga í þrjú til fjögur ár, út eitt kjörtímabil, og síðan mundu menn hugsa það upp á nýtt. Sem betur fer þorðu menn þá — sem ég sakna núna — að hugsa málið til lengri tíma.
Menn sem höfðu til dæmis gert út í mörg ár og jafnvel áratugi stóðu allt í einu frammi fyrir því að þeir gátu ekki veitt eins og þeir höfðu alltaf gert í gegnum tíðina. Aðgangur þeirra að auðlindinni var skertur þá og það þurfti að deila því út. Það kann vel að vera að hægt sé að gagnrýna það hvernig þáverandi stjórnvöld stóðu að breytingunum en þær breytingar voru nauðsynlegar fyrir uppbyggingu íslenskra fiskstofna og þar með nauðsynlegar til að við gætum haldið áfram að búa til og byggja upp það velferðarsamfélag sem við búum í í dag. Menn verða að hafa þessa sögu á hreinu og líka það farsæla skref sem stigið var undir forustu vinstri stjórnarinnar sem þá var, árið 1990, varðandi framsalið, sem er algjört lykilatriði varðandi hagræðingu og hagkvæmni í fiskveiðistjórnarkerfinu.
Ég hef hlustað hér niðri í þingflokksherbergi okkar sjálfstæðismanna á flestallar, ég held eiginlega allar ræður sem fluttar hafa verið í dag, margar alveg ágætar. Menn detta í alls konar karp, sem er líka skiljanlegt miðað við aðdragandann og aðferðafræðina við þetta mál allt saman. En stóra myndin að mínu mati er sú að menn vilja og segja: Við viljum tryggja auðlindaákvæði í sjávarútvegi og að það sé tryggt í stjórnarskrá. Við ræddum það í gær og það hefur margítrekað komið fram af hálfu okkar sjálfstæðismanna að við erum að sjálfsögðu reiðubúin til þess að stuðla að því að skynsamlegt ákvæði verði sett í stjórnarskrá.
Ég vil líka benda á hitt að það er eins og menn gleymi því að núgildandi lög um stjórn fiskveiða eru að grunni til frá árinu 1990. Í 1. gr. núgildandi laga eru ákvæði sem heil ríkisstjórn hékk á á sínum tíma, frá 1991–1995, og það var alveg skýrt í hverju merking þess ákvæðis fólst.
Ég vil, með leyfi forseta, lesa upp 1. gr. núgildandi laga, almenn ákvæði:
„Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar.“
Það er auðlindaákvæði í íslenskri löggjöf þó að menn tali kannski með öðrum hætti. En það sem þarf í dag er að styrkja þennan hluta innan stjórnarskrárinnar, og þá er bara best að menn dragi það fram.
Síðan segir, með leyfi forseta:
„Markmið laga þessara er að stuðla að verndun“ — við erum sammála því — „og hagkvæmri nýtingu þeirra“ — líka sammála því — „og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu.“
Það er ekki í fyrsta sinn sem menn tala um að treysta byggð í landinu. Það er í núgildandi lögum og menn hafa reynt að vinna eftir því.
Síðan segir í 3. málslið 1. gr.:
„Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.“
Mér finnst þetta vera alveg skýrt og ef menn vilja hnykkja enn frekar á þessu — ég trúi því að í hjarta sínu vilji menn í rauninni stuðla að þessu en menn séu ekki að fara út í þetta út af einhverjum popúlisma í þessu frumvarpi sem nú er — þá er þetta bara einfalt. Við förum í að breyta stjórnarskránni hvað þetta ákvæði og atriði varðar, og síðan er að hægt að hnykkja á ákveðnum atriðum innan frumvarpsins sem við erum núna að ræða. En það er óþarfi að fara allar þær leiðir sem er verið að fara í frumvarpinu.
Af hverju segi ég það? Jú, af því að íslenskur sjávarútvegur er sá hagkvæmasti í heimi, hann er hlutfallslega sá arðbærasti í heimi. Hann er ekki ríkisstyrktur, ég held að mér teljist svo til að þetta sé eini sjávarútvegurinn í heiminum sem ekki er með ríkisstyrkjum, eini sjávarútvegurinn sem er þannig rekinn. — Mér þætti vænt um, frú forseti, að aðeins einn fundur væri í salnum.
Að öðru leyti vil ég draga það fram, og það skiptir máli, að þetta hefur ekki komið af sjálfu sér. Þetta hefur einmitt komið af því hvernig við höfum undirbyggt kerfið, fyrst með því erfiða pólitíska skrefi sem var tekið 1983 og síðan 1990 með framsalinu. En síðan hafa að mínu mati verið gerðar ákveðnar breytingar sem hafa kannski verið skiljanlegar vegna þess að það var pólitískur þrýstingur að stuðla að aukinni línuívilnun og koma til móts við byggðirnar, að þá var byrjað að kroppa í kerfið. Og þetta kropp hefur verið stanslaust í rauninni síðan 1991 með línuívilnun, aukningu á línuívilnun og enn meiri aukningu á línuívilnun og síðan í gegnum byggðakvóta. Í lok þarsíðasta árs voru strandveiðar leyfðar. Allt er þetta gert til að koma til móts við þau viðhorf að reyna að stuðla að því að halda byggð víðar í landinu.
Ég vil hins vegar benda á athugasemdir og greinar eftir ýmsa sérfræðinga. Menn hljóta að fara að láta af þeim ósið sem núna virðist hafa byggst upp í þinginu af hálfu stjórnarmeirihlutans að hlusta ekki á umsagnaraðila eða ráð sérfræðinga. Þetta er að verða að algengum staðli hér í þinginu. Ég bendi á umræðuna um stjórnarskrána þar sem hver sérfræðingurinn, prófessorinn, lögfræðingurinn eða aðrir, landskjörstjórn og fleiri hafa bent á að þær breytingar sem við stöndum frammi fyrir varðandi stjórnarskrána og aðferðafræðina um breytingar á henni séu ekki réttar. Með því erum við ekki að segja að ekki eigi að breyta stjórnarskránni, en við skulum þá gera hlutina rétt. Það sama er með þetta mikilvæga mál sem snertir undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar, þann atvinnuveg sem hefur fleytt okkur núna á umliðnum árum í gegnum mjög erfiða tíma, ásamt áliðnaðinum og ferðamannaiðnaðinum, ég vil líka segja vísindum og rannsóknum í menntakerfinu.
Ég vil meðal annars vísa til þess sem Daði Már Kristófersson og Þóroddur Bjarnason segja um þetta frumvarp. Þeir benda á að byggðakvóti verði skertur um helming en þess í stað verði hægt að binda leigukvóta við ákveðin landsvæði. Þeir vara sérstaklega við skerðingu byggðakvóta áður en áhrif nýja kerfisins eru orðin ljós og þeir segja að mun nærtækara væri að draga úr strandveiðikvóta meðan í ljós kemur að hvaða marki leigukvótinn uppfylli kröfur um aðgang þjóðarinnar að auðlindinni.
Hvað segir maður eins og Ragnar Árnason, frú forseti, sem hefur fylgst mjög gaumgæfilega með og rannsakað þróun og framfarir innan sjávarútvegsins? Ég vil fá að vitna í grein sem var skrifuð í upphafi þessa árs. Hann segir meðal annars og undirstrikar að íslenskum sjávarútvegi hafi vegnað vel og honum hafi vegnað betur í hinni alþjóðlegu samkeppni en hjá mörgum öðrum þjóðum. Hann dregur einmitt fram breytingarnar á aflamarkskerfinu og segir, með leyfi forseta:
„Aflamarkskerfið dró mjög úr hinu skaðlega kapphlaupi um aflamagn en hvatti fyrirtækin þess í stað til að hámarka verðmæti leyfilegs afla og tileinka sér langtímahugsunarhátt“ — sem mér finnst með fullri virðingu vera reynt að útrýma á vissan hátt í þessu frumvarpi — „í fjárfestingum og markaðsstarfi. […] Mjög mikið af hinni miklu framleiðniaukningu í íslenskum sjávarútvegi síðustu áratugina er vegna aukinna gæða sjávarfangs, snjallari vinnslu og öflugra markaðsstarfs.“ — Og svo má lengi telja.
Benda má á ýmsar vísindarannsóknir á sviði sjávarútvegsfræða sem hafa stuðlað að því að verðmætin eru mun meiri. Menn hafa gert miklar rannsóknir og dregið fram niðurstöður sem tengjast hinum svonefnda sjávarklasa sem sýnir fram á það að þó að störfum meðal sjómanna hafi fækkað út af hagræðingu og hagkvæmni hefur óbeinum og beinum störfum í sjávarútvegi fjölgað mjög, ekki síst á sviði vísinda og rannsókna.
Ragnar heldur áfram og varar í grein sinni við breytingum á fiskveiðistjórnarkerfinu. Hann segir, með leyfi forseta:
„Segja má að þessar atlögur felist í þrennu: Í fyrsta lagi á að draga mjög úr varanleika og öryggi aflaheimilda og þar með hvetja fyrirtækin á nýjan leik til skammtímahugsunar í fjárfestingum og markaðsstarfi. Í annan stað er stefnt að því að færa enn stærri hluta leyfilegs heildarafla út úr aflamarkskerfinu og setja í svokallaða potta til pólitískrar úthlutunar á ári hverju.“ — Ég er á móti því. — „Með þessu er verið að hverfa aftur til fyrra fyrirkomulags aflakapphlaups og sóunar, en jafnframt grafið undan öryggi núverandi aflaheimilda. Í þriðja lagi eru uppi áform um enn frekari skattlagningu á sjávarútveginn umfram aðra atvinnuvegi og er hún þó ærin fyrir.“
Ragnar var þá greinilega ekki búinn að sjá þær tillögur sem hér liggja fyrir sem hljóta að vera byggðar á einhverjum misskilningi. Ef svo er ekki er einfaldlega eins og menn hafi verið að tala um þjóðnýtingu, en ég held að um ákveðinn misskilning sé að ræða. Ég trúi ekki öðru en að menn reyni að leita einhverra leiða sem stuðla að því að menn greiði veiðigjald en það verði sanngjarnt og hóflegt. Að þjóðin, ríkið, fái eðlilegt og sanngjarnt gjald fyrir aðganginn að auðlindinni en gjaldið verði ekki um leið til þess að hamla gegn fjárfestingum í sjávarútvegi, hamla gegn framförum, hamla gegn því að fyrirtækin haldi áfram að byggja upp hagkvæma og arðbæra starfsemi. Ég trúi ekki öðru en að þetta sé bara einhver misskilningur, þessi framsetning, eða þá sem verra er, að þetta verði beinlínis hrein og klár þjóðnýting. Ég ætla ekki að trúa því núna á árinu 2012.
Síðan bendir Ragnar Árnason á ýmsa aðra þætti varðandi samkeppni frá öðrum sjávarútvegsþjóðum, veikingu á samkeppnisstöðu íslensks sjávarútvegs. Hann dregur það fram og telur að þjóðin í heild muni tapa á svona breytingum.
Síðan segir hann, með leyfi forseta, í lokaorðum sínum:
„Sagan kennir okkur að búi stjórnvöld innlendum atvinnuvegum lakari samkeppnisskilyrði en atvinnuvegir annarra þjóða njóta er þess skammt að bíða að þessir atvinnuvegir lúti í lægra haldi í hinni alþjóðlegu samkeppni, dragist saman og visni. Þetta gerist óháð þeim náttúrulegu skilyrðum sem til staðar kunna að vera. Allt er þetta velþekkt í hagsögu og alþjóðahagfræði. Rannsóknir í íslenskri hagsögu benda eindregið til þess að opinber efnahagsstjórn hafi verið meginástæðan fyrir því að íslenskur sjávarútvegur gat ekki keppt við erlendan sjávarútveg öldum saman. Fyrir bragðið lifði þjóðin að óþörfu í sárri fátækt. Erfitt er að koma auga á nauðsyn þess að endurtaka þessi hagstjórnarmistök nú.“ — Þetta segir hinn góði prófessor við Háskóla Íslands, Ragnar Árnason.
Það eru þessi orð og svo margra annarra sem þingmenn hljóta, núna þegar málið er að koma til þingsins, að taka mark á. Við hljótum að fara yfir það hvort þetta sé í rauninni að skila því sem menn hafa verið að segja á hinum og þessum blaðamannafundum, forsætisráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að þetta eigi að efla byggð. Er það að efla byggð — því að potturinn er ekkert stærri, við erum ekkert að fá að veiða fleiri fiska úr sjónum — að taka frá einni byggðinni og færa til annarrar eftir pólitískri ákvörðun? Það er það sem þetta snýst um, þ.e. menn fara meðal annars að hætta að leigja kvóta á milli útgerðanna. Í staðinn á ríkið að skipta sér af þessu og það finnst mér mjög vond þróun.
Það er margt eftir og ég bið hæstv. forseta að setja mig strax á mælendaskrá að nýju, það eru svo mörg atriði sem ég á eftir að fara yfir, en ég vil taka undir það sem ég heyrði í ræðu ráðherra áðan og er sammála. Það tengist 2. mgr. 19. gr. frumvarpsins sem tengist sjóðum sem tengjast markaðs- og þróunarstarfi og þróunarreglum þar sem ráðstöfun aflamarks samkvæmt þessari grein rennur í sérstakan sjóð á vegum ráðherra. Þetta er nákvæmlega það sem meðal annars menntamálaráðuneytið hefur verið að reyna að úthýsa þannig að þetta verði ekki í höndum ráðherra, þetta verði í höndum fagaðila, að svona styrkjum verði úthlutað á grundvelli samkeppni og bestu færni en ekki handstýrt frá ráðherraborðinu.
Ég fagna því sérstaklega að menn skuli þó innan ríkisstjórnar, einn og einn, vera það framsýnir að tala um og þora að tala um það að AVS-sjóðurinn eigi að fara inn í vísinda- og tæknisjóðina, reyna að vinna þá með því sama markmiði og þar er gert. Ég held að það sé til mikilla heilla fyrir íslenska þjóð ef fleiri rannsóknasjóðir, sem eru á verkefnasviði hinna ýmsu atvinnuvega, starfi á sama grundvelli, grundvelli samkeppni og þess sem best gerist á markaði og það sama á auðvitað að gilda um fiskveiðistjórnarkerfið sjálft. Svo er ekki nú og þess vegna vil ég, (Forseti hringir.) frú forseti, að ég verði sett á mælendaskrá til að geta haldið ræðu minni áfram.