stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég er í minni annarri ræðu í þessu máli. Í fyrri ræðu minni rakti ég hvernig auðlindaarður verður til í fiskveiðum og hvernig hann skiptist á milli sjómanna og útgerða, hvernig takmarkanir þær sem kynntar eru í frumvarpinu leiða til þess að það er innleidd óhagkvæmni í kerfið og að auðlindaarði verði þá fórnað á altari offjárfestingar og fjölgunar sjómanna. Ég fjallaði um leigupottana og spurði þeirrar augljósu spurningar hvort það væri líklegra að nýliðar yrðu fleiri ef þeir gætu leigt af ríkinu en ef þau leigðu af útgerð, þ.e. skiptir einhverju máli fyrir menn og konur sem vilja koma í útgerð hvort þau leigi af öðrum útgerðarmönnum eða af ríkinu. Ég sé það ekki.
Ég lauk ræðu minni áðan með því að gleyma seinasta punktinum sem ég ætlaði að tala um þannig að ég held að ekki sé úr vegi að tala um hann núna. Þær takmarkanir sem verða innleiddar hérna, eins og takmarkaðra framsal og afnám þess í framtíðinni, leiða til þess að auðlindarentan hverfur. Þá víkur sögunni að hugsuninni í hinu síðara frumvarpi, um veiðigjaldið sjálft. Ef við breytum kerfinu þannig að auðlindarentan minnkar, erum við þá ekki um leið að minnka þann stofn sem menn hafa verið að reikna sér veiðigjaldið á? Við ætlum fyrst að breyta kerfinu, eyða þannig auðlindarentunni með óhagkvæmara kerfi, en samt ætlum við að innheimta mun meira af auðlindagjaldinu. Þetta er ekki góð latína og þetta mun enn frekar leiða til þess að rekstur í útgerð verður erfiðari og jafnvel geta einhver fyrirtæki farið á hausinn.
Mig langar aðeins að minnast að lokum á þessa árgreiðsluaðferð. Hún byggir í meginatriðum á því að það er reiknuð einhver prósenta á það fé sem er bundið í rekstrinum. Hagstofan hefur reiknað 6% hingað til en hér er af örlæti lagt til 8% í veiðum og 10% í vinnslunni. Ég get svo sem ekki fett fingur út í 8% til þess að standa undir afskriftum, fjármagnskostnaði og hagnaði. Ef við værum til dæmis að byggja jarðgöng eða annað slíkt væri það alls ekki óeðlileg krafa um prósentu. Það þætti hins vegar léleg og lítil ávöxtun í einkarekstri þar sem er tekin áhætta. Þessi prósenta ætti að vera nær því að vera 15% til að endurspegla það að þetta eru einkaaðilar.
Eftir að þessi prósenta sem á að standa undir afskriftum fjármagnskostnaðar og hagnaði hefur verið tekin er tekinn góður slurkur af því sem eftir stendur og kallaður umframhagnaður. Það fer alla leið upp í 70%. Af 30% sem eftir standa er reiknaður 20% tekjuskattur. Mér finnst ansi djarft að ætla að taka svona mikið af auðlindarentunni og bara af öðrum aðilanum sem fær auðlindarentu. Auðlindarentan skiptist á milli sjómanna og útgerðarmanna í hlutföllunum tveimur á móti þremur, sjómennirnir fá tvo hluta og útgerðirnar þrjá hluta, en hér á bara að fara inn á útgerðirnar. (Forseti hringir.)