140. löggjafarþing — 79. fundur,  29. mars 2012.

stjórn fiskveiða.

657. mál
[00:30]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta var ágæt spurning hjá hv. þingmanni. Ég fór einnig yfir það í fyrri ræðu minni hvernig það að banna framsal, eins og verður þegar þetta eru orðnir hreinir nýtingarsamningar, friðar fyrirtækin eins og hv. þingmaður orðaði það. Fyrirtæki rísa og hníga, staðna og annað slíkt þannig að það er gríðarlega mikilvægt að umhverfið um þessi fyrirtæki sé þannig að þau geti, eins og hv. þingmaður sagði, sameinast öðrum fyrirtækjum, hætt rekstri, menn jafnvel farið út úr rekstrinum o.s.frv. Innifalin í þessu frumvarpi er nokkurs konar friðunarklásúla á fyrirtækin og það er það sem ég varaði við í minni fyrri ræðu.

Síðan er annað mál. Hv. þingmaður spyr hvort ég vilji að það sé tryggt að veiðigjaldið verði aldrei það hátt að öll fyrirtæki lifi af, þ.e. að veiðigjaldið megi ekki ógna nokkru fyrirtæki. Nei, það er ekki alveg það sem ég er að segja en ég held aftur á móti að eins og þetta er lagt upp hérna ógni þetta allt of stórum hluta fyrirtækjanna, óeðlilega stórum hluta. Vegna þessa ákvæðis um að þetta breytist yfir í hreina nýtingarsamninga verða þau sem eftir standa óhjákvæmilega óhagkvæm með tímanum. Fyrirtæki eiga sinn líftíma, getum við sagt, þau rísa og hníga, þau staðna og annað slíkt. Ef ekki er hægt að endurskipuleggja þau með kaupum og sölu á kvóta og öðru slíku erum við einfaldlega að múra þau (Forseti hringir.) inni, búa til nokkurs konar skyndimynd af einhverju sem var.