140. löggjafarþing — 79. fundur,  29. mars 2012.

stjórn fiskveiða.

657. mál
[00:53]
Horfa

Kristján Þór Júlíusson (S) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég hef í rauninni engin svör við þessu því að þarna vantar inn í frumvarpið, eins og ég gat um í ræðu minni, alla útfærslu eða hugsunina varðandi þessa þrískiptingu tekna af kvótaþinginu. Það eina sem liggur fyrir er að ríkissjóður, sem leggur þetta gjald á, á ekki að fá nema 40% af því. 40% eiga að fara til sveitarfélaganna án þess að það sé rökstutt með neinum hætti og síðan eiga 20% að fara í einhvern sjóð sem ráðherra úthlutar úr. Þarna er ráðherra kominn með heimild til ráðstöfunar á nokkrum milljörðum á hverju ári, algjörlega óskilgreinda fjárhæð.

Ég veit ekki hvernig sveitarfélögin munu koma sér saman um hvernig þessu verði skipt. Það verða örugglega jafnharðar deilur milli einstakra sveitarfélaga í þessum efnum og eru á milli stjórnmálaflokka um ráðstöfun á fjármunum af hinum margfrægu safnliðum á ári hverju. Þetta verður eins konar uppboðsmarkaður árlega og menn bítast þar um bestu bitana. Í þessu kerfi, ef þetta verður eitthvert kerfi, munu allir einfaldlega reyna að verja sitt. Ef þetta á að ganga eftir óbrjálað, eins og hér er lagt til, er grundvallarforsenda til að þetta geti gengið í mínum huga sú að ríkið leggi miklu skýrari línur en hér er gert um ráðstöfun á þessu og hvernig skiptingin eigi að vera á milli svæða eða sveitarfélaga. Mér hefði fundist eðlilegra að þetta rynni allt til ríkissjóðs sem ber alla ábyrgð á því að leggja þetta gjald til.