140. löggjafarþing — 79. fundur,  29. mars 2012.

stjórn fiskveiða.

657. mál
[00:55]
Horfa

Kristján Þór Júlíusson (S) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni enn og aftur eljusemina við andsvörin. Hann þekkir þennan málaflokk mætavel en ég skal reyna að svara þessu. Ég held að þetta þýði í rauninni ekki neitt. Þetta er þannig vaxið að hugsunina í þetta vantar og þá er þetta með öðrum orðum bara núll. (Gripið fram í.) Þetta er bara núll, hugsunin í því er núll. Ég held að þetta sé einfaldlega almenn viljayfirlýsing um eitthvað í þá veruna að sveitarfélögunum eigi að vera ætluð hlutdeild í því gjaldi eða þeim tekjum sem af þessu koma. Sveitarfélögin fái tekjur af atvinnustarfseminni eins og hún gengur og getur gengið best. Ég hef miklu meiri áhyggjur af öðrum þáttum þessa frumvarps á sveitarfélögin, starfsemi þeirra, atvinnurekstur, getu til að skapa og veita íbúunum þjónustu. Ég hef miklu meiri áhyggjur af þeim atriðum sem kveðið er á um í þessu frumvarpi en því hvernig á að ráðstafa einhverjum 40% af þessu gjaldi af kvótaþinginu. Það er smámál í mínum huga í samanburði við það sem bíður til dæmis í umræðunni um frumvarpið sem verður tekið fyrir væntanlega á morgun um veiðileyfagjaldið. Þar er beinlínis vegið að miklu stærri og ríkari hagsmunum sveitarfélaga og ég vænti þess að það verði miklu harðari viðbrögð, sérstaklega úr ýmsum sjávarbyggðum landsins, við þeim áformum en nokkurn tímann væntanlegt rifrildi, svo ég leyfi mér að vitna til orða hv. þingmanns, sveitarfélaga um væntar tekjur af þeim 40% sem ætlað er að verja kvótaþingsgjaldinu. Hinn þátturinn er miklu (Forseti hringir.) erfiðari.