140. löggjafarþing — 79. fundur,  29. mars 2012.

stjórn fiskveiða.

657. mál
[01:25]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Nú erum við farin að ræða næsta mál á dagskrá, sem er um veiðigjöld, en það er einmitt þar sem lestunin lendir á útgerðinni. En það er hárrétt hjá hv. þingmanni að kröfuhafar sem hafa tapað ótrúlega miklum peningum á Íslandi — það er talað um að þeir hafi tapað 7–8 þús. milljörðum kr. — eru náttúrlega verndaðir af eignarrétti og ef aftur og aftur er höggvið í sama knérunn, þeir eiga jú góðan hlut í bönkunum, þá kann að vera að það reyni á þetta eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Ég veit ekki hvort þeir eru með beint ákvæði í sínum samningum við slitastjórnirnar um slíkt en ég hugsa að þeir muni alla vega skoða það mjög vandlega. Hér er gerð krafa um einhverja meðaltalsávöxtun útgerðarfyrirtækja og það þýðir að mörg fyrirtæki sem eru sérstaklega mikið skuldsett munu hreinlega rúlla til tjóns fyrir bankana og það kemur þá önnur skriða af tjóni til viðbótar við þau lán sem voru dæmd ógild og voru ógild en voru samt metin í eignum bankanna þannig að þetta getur haft töluverð áhrif á bankana. Mér skilst að það sé krafa um að vísa þessu til efnahags- og viðskiptanefndar, alla vega verði þetta skoðað, og ég held að það sé mjög brýnt að menn skoði mjög vandlega hver verði staða útgerðarfyrirtækja eftir að bæði þessi frumvörp hafa verið samþykkt vegna þess að þau munu hafa mjög mikil áhrif á hag útgerðarfyrirtækja, hag einstakra staða úti á landi og hag bankanna.