140. löggjafarþing — 79. fundur,  29. mars 2012.

stjórn fiskveiða.

657. mál
[01:40]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að þetta sé hárrétt hjá hv. þingmanni, eins og ég sagði áðan. Ég kom aðeins inn á það að helsta gagnrýni smábátasjómanna, litlu útgerðanna, minnstu útgerðanna í landinu, sem ógjarnan eru nefndar hér af samfylkingarþingmönnum sérstaklega, er á þetta. Það hefur verið sáluhjálparatriði hjá mörgum af þessum vinstri þingmönnum að banna allt framsal.

Hverjir skyldu vera sammála þeim í því? Jú, forusta LÍÚ. LÍÚ vill nefnilega hafa veiðiskylduna algjöra, stöðva allt framsal. Og nú er spurningin hvort Samfylkingin sé að þóknast LÍÚ í þessu, hvort hún sé orðin sérstakur gæslumaður sérhagsmuna, eins og þingmenn Samfylkingarinnar orða það sjálfir. Þetta hljómar þannig. Eða kannski frekar, virðulegi forseti, hljómar þetta þannig (Forseti hringir.) að þetta fólk hefur ekkert vit á því sem það er að tala um og það kristallast í þeim gögnum sem það leggur fyrir okkur ár eftir ár.