140. löggjafarþing — 79. fundur,  29. mars 2012.

stjórn fiskveiða.

657. mál
[01:52]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég kom inn á það í ræðu minni fyrr í dag að ég teldi þetta frumvarp vera allt að því byggðafjandsamlegt. Við lestur þess og eftir þann tíma sem maður hefur haft til að kynna sér það getur maður ekki annað en komist að sömu niðurstöðu og þeir sem skrifuðu greinargerð með frumvarpinu þar sem þeir segja að mjög ólíklegt sé að byggðaaðgerðir frumvarpsins nái þeim markmiðum sem stefnt er að.

Í ræðu minni áðan fór ég yfir nokkra þætti sem eru hreinlega mjög til þess fallnir að veikja þessa stöðu. Kvótaþing er til dæmis einn af þeim þáttum. Það er alþekkt að fyrirtæki í byggðarlagi eða á byggðasvæði hjálpi hvert öðru með kvóta, þau sem eru aflögufær. (Forseti hringir.) Með þessu kvótaþingi er komið í veg fyrir það og ekkert tillit tekið til þess að menn geti verið að bjarga sér innan svæða.