140. löggjafarþing — 79. fundur,  29. mars 2012.

stjórn fiskveiða.

657. mál
[01:59]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég kem hér upp til að taka undir þessa ósk hv. þm. Gunnars Braga Sveinssonar. Ég verð að lýsa þeirri skoðun minni að það er algjörlega óásættanlegt að hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra — og ég ítreka enn með allri virðingu fyrir hæstv. ráðherra Katrínu Jakobsdóttur — skuli ekki vera viðstaddur. Það er óásættanlegt að ráðherrann sé ekki á svæðinu þegar hið stórpólitíska áherslumál ríkisstjórnarinnar, sem var sett fram í stjórnarsáttmálanum og við höfum verið að þjarka og þrúkka um í þrjú ár, er komið á dagskrá. Á undanförnum dögum hafa menn tekið stórt upp í sig um hvað sé fordæmalaust og hvað sé ekki fordæmalaust en ég leyfi mér að fullyrða að þegar um svo stórt mál ríkisstjórnar er að ræða er það fordæmalaust að sá ráðherra sem ber málið uppi sé ekki (Forseti hringir.) við umræðuna. Ég veit fullvel að það hefur gerst og ég hef verið viðstödd þegar hæstv. ráðherra mælti fyrir máli fyrir (Forseti hringir.) hæstv. umhverfisráðherra, en það voru lítil mál sem ekki var ágreiningur um.