stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég ætla einmitt að ræða um fundarstjórn forseta. Ég legg til að forseti taki þetta mál af dagskrá og bíði þar til sá ráðherra sem samdi þetta frumvarp kemur til umræðunnar og getur svarað spurningum sem ég hef ekki fengið svar við, t.d. um það hvernig eigi að dreifa þessum 40% til sveitarfélaganna. Á þetta að gerast eins og með silfur Egils, að það verði slegist um það, eða hvernig ætla menn að gera það? Ég fékk heldur ekki svar við því á hvaða verði ríkið ætlar að kaupa kvótann til baka umfram þessi 20% sem framseld eru til sveitarfélaganna. Mér finnst sú staða komin upp að við fáum ekki þau svör frá hæstv. ráðherra, eins góður og gegn og hann er og veit sennilega allt um menntamál. Þetta eru mál sem sá sem er í reynd hæstv. sjávarútvegsráðherra gæti svarað okkur og hefði eitthvert vægi. Ég legg til að forseti taki þetta mál af dagskrá og taki næsta mál á dagskrá sem er veiðigjöld og þá getum við rætt það smávegis þar til ráðherra kemur. (Forseti hringir.)