140. löggjafarþing — 79. fundur,  29. mars 2012.

stjórn fiskveiða.

657. mál
[02:11]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég ítreka það sem ég sagði áðan, ég held að það sé full ástæða til að gefa hæstv. sjávarútvegsráðherra sem staddur er erlendis tækifæri til að taka þátt í þessari umræðu. Ég vil líka segja, frú forseti, að það er algjörlega forkastanlegt að ráðherrann sem ber ábyrgð á þessu stóra máli, fiskveiðistjórnarmálinu, skuli haga tíma sínum og forgangsraða þannig að fara frekar til Kanada á einhvern Harvard-viðskiptafund eða hvað þetta heitir í stað þess að ræða og fylgja úr hlaði þessu stóra máli. Hvers konar lítilsvirðing er þetta við málið? Látum vera að ráðherrann hugsi ekki um okkur þingmenn en að fara svona með þetta stóra mál finnst mér mjög merkilegt. Ég kalla það lítilsvirðingu og þá er ég alls ekki að tala neitt niður til þeirra sem eru hér að fylgjast með málinu, reyna að halda hér uppi umræðum og svara spurningum ágætlega. Það er mjög sérstakt að ráðherra sjávarútvegsmála (Forseti hringir.) skuli ekki vera hér til að mæla fyrir og svara fyrir sitt eigið mál, stærsta málið. (Gripið fram í: Hneyksli.)