stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Já, það er þetta með vinnubrögðin. Ég vék að því í minni fyrri ræðu í dag að ég teldi vinnubrögðin í þessu máli allsendis óásættanleg. Það er svo sem ekki margt sem maður getur sótt fyrirmynd um til Evrópusambandsins en þó er það þannig á þeim bæ að þar, líkt og hér, stendur yfir endurskoðun á fiskveiðistjórnarkerfinu. Það er ólíku saman að jafna þegar horft er til þess með hvaða hætti menn bera sig þar að við það verkefni og síðan hér á Íslandi. Þar hafa menn gefið sér góðan tíma í að leggja fram gögn, grænbækur og hvítbækur til skiptis, leita sjónarmiða hjá einstökum aðildarríkjum og hjá hagsmunaaðilum, taka umræðu í þinginu (Forseti hringir.) og í framkvæmdastjórninni. Þessar upplýsingar hafa smám saman lagt grunn að nýjum tillögum sem (Forseti hringir.) sagt er að muni fæðast síðar á þessu ári. Þessu ferli var öllu sleppt á Íslandi. Þessu er bara velt í fangið á þinginu.