stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna áðan. Ég velti því fyrir mér og er kannski ágætt að hv. þingmaður fari yfir það í ræðustól hver stefna Sjálfstæðisflokksins er í sjávarútvegsmálum. Mér finnst einhvern veginn eins og við hér á þinginu séum ekki miklu nær um það hvernig sjálfstæðismenn vilja sjá þetta kerfi á næstu árum, hvaða breytingar hægt er að gera á því.
Nú höfum við framsóknarmenn lagt fram á flokksþingi okkar tillögur sem eru svona í grenndinni við það sem er á borðinu þegar við horfum á stóru myndina, þ.e. að við byggjum áfram á aflamarkinu og aflahlutdeildinni, við séum með samninga sem við orðum, hér er talað um leyfi, gerum reyndar smágreinarmun þar á, en að stóra myndin sé í þeim dúr sem hér er kveðið upp úr með.
Getur verið að Sjálfstæðisflokkurinn sé á svipuðu róli, sé jafnvel til í að fara í það með okkur að byggja á þeirri hugmyndafræði að gerðir séu samningar til lengri tíma um nýtingu? Eða hver er stefna flokksins í sjávarútvegsmálum?
Þingmenn hafa bent á ýmsar leiðir og ýmsa galla í þessum málum en lítið minnst á kosti. Ég hef bent á nokkra kosti eða möguleika í stöðunni í ræðum mínum en sakna þess svolítið að heyra ekki í rauninni hvert sjálfstæðismenn vilja fara í þessu stóra máli sem er hér um að ræða. Ég sakna þess reyndar líka að heyra ekki meira frá stjórnarliðum um málið. En mikilvægt er að þingheimur — og það komist í þingtíðindin — fái það svolítið skýrt fram hvernig Sjálfstæðisflokkurinn sér sjávarútvegsstefnuna og kerfið til framtíðar.