140. löggjafarþing — 79. fundur,  29. mars 2012.

stjórn fiskveiða.

657. mál
[02:44]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég er með spurningu til hæstv. forseta um hvað forseti hyggist láta þennan þingfund standa lengi. Eins og við munum voru greidd hér atkvæði fyrr í dag um það að heimilt væri að halda fund lengur ef þurfa þætti. Nú er staðan sú að klukkuna vantar kortér í þrjú og við erum … (Gripið fram í.) Þetta er kortéríþrjú ríkisstjórnin sem við erum að ræða hér um. Það er margt eftir órætt í þessu máli. Við höfum gert athugasemdir við það að hæstv. sjávarútvegsráðherra sé ekki viðstaddur. Það eru nefndafundir í fyrramálið og ég á að mæta á utanríkismálanefndarfund klukkan hálfníu. Það er einfaldlega þannig, frú forseti, að þetta eru ekki vinnubrögð til eftirbreytni. Því vil ég í fullri vinsemd spyrja hæstv. forseta hvort til standi að fara að fresta þessum þingfundi.