stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Því meira sem við ræðum þetta því augljósara er hve mikil þörf er á því að hæstv. sjávarútvegsráðherra verði hér við umræðuna. Ég vek til dæmis athygli á því að við erum að ræða hér stórfrétt. Ég er ekkert að ræða það undir þessum lið, [Hlátur í þingsal.] en það snýst um það að allt í einu er búið að hefta framsal á embættismanni milli ráðuneyta þannig að hann getur ekki lengur sinnt því mikilvæga verkefni sem hann á að sinna, sem er að leiða nefnd okkar í makríldeilunni þar sem við eigum við hið illvíga Evrópusamband. Við erum bara hér og það er einn maður sem þekkir þetta mál, þ.e. hæstv. sjávarútvegsráðherra, og hann er ekki á svæðinu og þess vegna getur enginn svarað neinu sem þessu máli viðkemur. Ég vek athygli á því, virðulegi forseti, að makríllinn er alveg nátengdur (Forseti hringir.) sjávarútvegsmálum og við erum akkúrat að ræða það frumvarp.