stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Það er einstaklega skemmtilegt að ræða þetta mikilvæga mál hér klukkan rúmlega þrjú að nóttu til. Það sýnir að málefni ríkisstjórnarinnar þola ekki dagsljósið, svo sannarlega, og ekki nóg með að þau þoli ekki dagsljósið heldur hlaupa ráðherrarnir í burtu til annarra landa þegar málin þeirra eru á dagskrá. Afar einkennilegt.
Kannski er hæstv. sjávarútvegsráðherra ekki við umræðuna í dag vegna þess að fyrrverandi hæstv. sjávarútvegsráðherra upplýsti í umræðunum að okkar allra besti samningamaður hefur verið látinn fara. Tómas H. Heiðar sem hefur verið samningamaður okkar í makríldeilunni og í málefnum hvalveiða okkar hefur verið látinn fara og að sjálfsögðu læðist að manni sá illi grunur að þetta snúi að Evrópusambandsumsókninni. Eins og Íslendingar vita eru hvalveiðar bannaðar í Evrópusambandinu. Þessi embættismaður hefur staðið fast í fæturna í makríldeilunni. Þegar ég fregnaði það að hæstv. ráðherra Steingrímur J. Sigfússon hefði yfirtekið sjávarútvegsráðuneytið óttaðist ég mjög að það yrði látið eftir í makríldeilunni sem nú hefur komið í ljós, þessi embættismaður hefur verið látinn fara úr því mikilvæga starfi sem hann var í. Þetta er kannski gert til þess að hæstv. sjávarútvegsráðherra Steingrímur J. Sigfússon geti ráðið einhverja sem eru á hans snærum, álíka góða samningamenn og birtust okkar í fyrsta Icesave-samningnum. Þar var landað „glæsilegum samningi“ eins og við öll munum en ég vona að þessi ríkisstjórn verði farin frá áður en lokapunkturinn í makríldeilunni verður settur. Ég treysti ekki núverandi ríkisstjórn til að passa upp á þá nýfengnu auðlind okkar sem makríllinn er, ekki frekar en að núverandi ríkisstjórn stæði vörð um íslenska ákvæðið í loftslagskvótanum. Það var framselt vegna þess að þá var búið að leggja inn umsókn að Evrópusambandinu. Evrópusambandinu voru sisona réttar þær losunarheimildir sem íslenska ákvæðið hljóðaði upp á. Ég hef ekki uppreiknað það til núvirðis en á árinu 2007 voru þær heimildir metnar á 15 milljarða íslenskra króna og hafa síðan hækkað í verði. Þær fengum við fyrst og fremst vegna hreinleika landsins og vegna þess hve lítið mengandi stóriðjan okkar er á alþjóðavísu.
Þetta er það sem þessi ríkisstjórn stendur fyrir, að framselja auðlindir okkar til Evrópusambandsins vegna þess að það er einlægur áhugi Samfylkingarinnar að við göngum í það. Úr því að Evrópusambandið ber á góma verð ég aðeins að minnast á fyrrum frumvarp til laga um breytingu á stjórn fiskveiða sem var til umræðu á fyrra þingi. Gildistökuákvæði þess frumvarps hljóðaði upp á að lögin ættu að gilda til ársins 2024 og síðan var ekki neitt ákvæði um hvað skyldi koma í framhaldinu. Það var sólarlagsákvæði í því frumvarpi og þá setti ég það í samhengi við það að það væri í fullum takti við þær undanþágur sem hugsanlega gæti verið hægt að semja um við Evrópusambandið. Við vitum að Evrópusambandið ásælist mjög allar okkar auðlindir.
Það er svolítið merkilegt að glugga í meginefni fyrirliggjandi frumvarps og nokkuð merkilegt að þetta skuli standa í frumvarpi þessarar ríkisstjórnar því að ríkisstjórnarflokkarnir hafa verið óþreytandi við að tala niður okkar góða fiskveiðistjórnarkerfi, hnefar steyttir og talað illa um þá aðila sem stunda fiskveiðar. Ég ætla að grípa niður í textann á bls. 26 þar sem fjallað er um meginefni frumvarpsins, með leyfi forseta:
„Sjálfbærni fiskveiða er þannig grunnmarkmið og forsenda þess að árangur náist við að uppfylla önnur markmið laganna. Hafa ber í huga að fiskveiðar skapa atvinnu vítt og breitt um landið. Þær skapa tekjur og eru undirstaða verðmætasköpunar í fiskvinnslu. Vel stýrðar fiskveiðar geta að auki skapað arð sem er mikilvæg uppspretta fjármagns og stuðlar að hagsæld.“
Hverjum hefði dottið í hug að þessi skoðun gæti komið inn í frumvarp um stjórn fiskveiða frá Samfylkingunni og Vinstri grænum? Hér er viðurkennt hvað sjávarútvegurinn hefur verið byggður upp á sterkum grunni í ríkisstjórnartíð Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Hér kemur það skýrt fram.
Hér skiptir líka miklu máli, og sýnir hvað þetta frumvarp er byggt á veikum grunni, umsögn fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins. Þar er bent á ráðherravæðinguna sem hefur verið talað um hér í kvöld, einar 55 tillögur að reglugerðarbreytingum, og að ekki sé hægt að hafa slíkar opnar heimildir eins og kemur fram í frumvarpinu. Það er sagt í bráðabirgðaákvæði III, IV og V að gert sé ráð fyrir ráðherranefndum sem er ætlað að fjalla um og gera tillögur um ýmis flókin úrlausnarefni. Þar er talað um að ekki þurfi að gera ráð fyrir því að greiða þessum fulltrúum gjald fyrir vinnu sína en að samt hljóti einhver kostnaður að verða af þóknun til annarra aðila.
Aðalmálið er svo að fjárlaganefnd þingsins hefur gagnrýnt miklar ráðstafanir til ráðherra sem kveðið er á um í þessu frumvarpi. Samkvæmt 19. gr. er verið að opna á að ráðherra fái sérstakan sjóð og hann skal ráðstafa honum sjálfur. Ég hélt að við værum að færa okkur til framtíðar eftir þetta bankahrun en hér er verið að taka fjárveitingu inn í ráðuneytið sem hæstv. sjávarútvegsráðherra á að ráðstafa sjálfur. Hér stendur orðrétt, með leyfi forseta:
„Ákvæðið er opið og óútfært og í bráðabirgðaákvæði VI er mælt fyrir um skipun nefndar með aðild samtaka sveitarfélaga og hagsmunaaðila í sjávarútvegi sem geri tillögur um reglur um ráðstöfun tekna. Í þessu sambandi bendir fjármálaráðuneytið á að mörkun ríkistekna með ráðstöfun framlaga til tiltekinna verkefna, í þessu tilviki til sjóðs í vörslu ráðherra, bindur hendur fjárveitingavaldsins og skerðir þar með fjárstjórnarvald Alþingis sem kveðið er á um í stjórnarskránni.“
Þetta er nú öll dýrðin sem núverandi ríkisstjórn stendur fyrir, að færa fjármagn inn í ráðuneytið. Það er ekki nóg með að hér séu lagðar til 55 reglugerðir og fiskveiðistjórnarkerfið raunverulega embættisvætt, það er staðreynd líka að fjármagn verður fært beint inn í ráðuneytið og fjárlagaskrifstofan getur ekki annað en gert athugasemdir við það. Hún segir að það brjóti hreinlega gegn stjórnarskrá Íslands vegna þess að fjárveitingavald Alþingis er skert sem þessu nemur. Það er alveg augljóst að hæstv. sjávarútvegsráðherra hefur tekið til fótanna úr fjármálaráðuneytinu því að hann hefur verið kallaður skattmann hingað til. Það er sagt í þessu áliti frá fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins að slíkar ráðstafanir sem leiða af mörkun tekna séu gagnrýniverðar vegna þess að fyrir liggur að afar erfið staða blasi við í ríkisfjármálum sem kalli á að leita verði allra leiða til aukinna tekna og að engin tækifæri verði látin fara forgörðum til að draga úr og stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs. Mörkun nýrra ríkistekna í tiltekna útgjaldafarvegi styður ekki við yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar um jöfnuð í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Hér fær þetta frumvarp falleinkunn vegna þessa mikla framsals á fjárveitingavaldi til ráðherrans sjálfs sem leggur þetta fram. Ég segi ekki annað en að það er ekki nema von að hæstv. ráðherra sé að spóka sig í Kanada þegar þetta er lagt fram. Ekki er nóg með að hann taki til sín lagasetningarvaldið heldur er hann líka að taka til sín fjárveitingavaldið á Alþingi.
Tíminn líður hér hratt. Ég get ekki hætt að ræða þetta mál fyrr en ég hef bent á hvað þetta frumvarp byggir á veikum grunni. Hér er á bls. 26 vísað í það hvað sameign þjóðarinnar er. Það er búið að vera umdeilt í mörg ár og ekki er komin endanleg niðurstaða í hver þjóðin er, hvað þjóðareign og hvað það þýðir lögfræðilega. Hér er brugðið á það ráð, og augljóst að þetta frumvarp kemur að nokkru leyti frá Samfylkingunni eins og lýst hefur verið undir liðnum um fundarstjórn forseta, að gera tillögu um að nytjastofnar á Íslandsmiðum verði lýstir sameiginleg og ævarandi eign íslensku þjóðarinnar. Þessi orðalagsbreyting tekur meðal annars mið af tillögu stjórnlagaráðs frá árinu 2011 að frumvarpi að nýrri stjórnarskrá.
Virðulegi forseti. Er boðlegt fyrir lagasetningarvaldið á Íslandi að taka upp í frumvarpi og nota sem rökstuðning inn í þetta mál tillögur frá ólöglega kjörnu stjórnlagaráði sem eru ekki komnar til framkvæmda? Hvers lags eiginlega vinnubrögð eru þetta á þinginu? Það er ekki nema von að hæstv. forsætisráðherra, sem lætur ekki sjá sig hér í kvöld, leggi mikla áherslu á að hér sé rætt samtímis þessu frumvarpi um breytingar á stjórn fiskveiða breytingar á nýrri stjórnarskrá og leiti eftir heimild til þess að fá að leggja svokallað frumvarp stjórnlagaráðs fram í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég hef aldrei séð annað eins í nokkru frumvarpi, að það sé vísað til rökstuðnings einhvers sem er ekki til.
Virðulegi forseti. Þetta er ekki lögfræði. Ég kalla það heimspeki að vísa í rökstuðning í lagafrumvarpi frá einhverju sem er ekki til, hefur ekki gildi fyrir íslenskum rétti og hefur ekki gildi í lagasetningarlegu tilliti.
Þetta er að sjálfsögðu í takt við það sem kemur frá þessari ríkisstjórn. Hún vill setja málin fram í ófriði en ekki friði, það hefur margsýnt sig. Við værum ekki að ræða þetta mál klukkan að verða hálffjögur að nóttu til ef það hefði verið sett fram í friði. Það er nokkuð sem þessi ríkisstjórn hefur tamið sér.
Virðulegi forseti. Ég læt þessu lokið nú en kem til með að beita mér enn frekar í seinni umræðum í þessum lagatæknilegu klækjum sem ríkisstjórnin beitir fyrir sig í þessu frumvarpi. Að þetta skuli vera notað sem rökstuðningur er alveg dæmalaust en það er í takt við það sem þessi verklausa ríkisstjórn stendur fyrir.