stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þá ágætu umræðu sem hér hefur farið fram um þetta frumvarp um fiskveiðistjórn. Ég tel þó rétt að nefna nokkur atriði mjög stuttlega en ég tel mig hafa farið ágætlega yfir það ákvæði sem snýr að ævarandi og sameiginlegri eign þjóðarinnar og hlutverki ríkisvaldsins sem ráðsmanns í því samhengi.
Hér hefur talsvert verið rætt um áhrif á sjávarútvegsfyrirtæki og um veiðigjald sem er ekki til umræðu hér heldur verður til umræðu síðar og er annað mál. Það hefði vissulega verið æskilegt að ræða þessi mál saman en það varð ekki niðurstaðan og ég vil ítreka það einu sinni enn að það hefur ekki verið til beinnar umræðu en skerðingar hafa verið hér til umræðu. Mér finnst ástæða til að minna á að miðað við núverandi stöðu þurfa þeir sem eiga hlutdeildir í þorski, ýsu, ufsa og steinbít, eins og ég fór yfir hér fyrr, að skila á bilinu 7% og upp í 9,5% í hliðarráðstafanir. Þeir sem hafa verið með aðrar tegundir skila einungis 1,3% í hliðarráðstafanir. Þetta er mikill munur og með frumvarpinu er hlutfall þessara annarra tegunda hækkað úr 1,3% í 5,3%. Það er því verið að jafna stöðu einstakra tegunda og við það hækkar auðvitað hlutdeildin í hliðarráðstafanir. Með þessum breytingum yrði hlutfallið komið úr 4,5% í 6,7% þannig að nýtingarleyfin eru um það bil 93% af aflaheimildum en ríkið tekur um það bil 7% í hliðarráðstafanir. Ég tel því ekki ástæðu til að telja að þessar skerðingar verði til þess að kollvarpa sjávarútveginum eins og hér hefur verið haldið fram.
Hér hefur líka verið rætt um byggðavinkilinn. Mér finnst ástæða til að vitna aðeins í þá greinargerð sem Þóroddur Bjarnason skrifaði og fylgir með frumvarpinu en því hefur verið haldið fram að dregið sé úr byggðatengingu. Við megum ekki gleyma því sem stendur hér um þær byggðaaðgerðir sem við höfum beitt, þ.e. ég vitna í Þórodd Bjarnason, með leyfi forseta:
„Mótvægisaðgerðir í lögum um fiskveiðistjórn hafa hingað til verið fremur ómarkvissar og illa til þess fallnar að efla svæðisbundna útgerð eða auka efnahagslegan stöðugleika viðkvæmra byggðarlaga. Þannig geta byggðakvótar til minni sjávarþorpa sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á aflaheimildum fiskiskipa skipt miklu máli til skamms tíma. Í núverandi útfærslu eflir slík úthlutun hins vegar hvorki atvinnusvæði í heild né styrkir þær sjávarbyggðir sem mesta möguleika hafa á því að snúa vörn í sókn, heldur stuðlar fyrst og fremst að því að hnignun sjávarbyggða verði á svipuðum hraða alls staðar á landinu.“
Þóroddur heldur svo áfram í greinargerð sinni og telur vissulega að í þessari aðferð sem byggir á hinum svæðisbundnu leigupottum felist möguleikar, en varar að sjálfsögðu við því að þar verði að fara varlega fram og meta áhrif aðgerða jafnóðum.
Ég held að það sé mjög mikilvægt að við áttum okkur á því að hér er byggðaáhersla en hún er vissulega með öðrum hætti en verið hefur.
Ég ætla ekki að ræða mikið meira hér en vil þó minna á þann sjóð sem hefur verið nefndur hér og menn eru raunar ekki á eitt sáttir um hvort sé góður eða ekki. Ég ítreka það sem ég hef sagt hér áður líka að í ákvæði til bráðabirgða er kveðið á um að það eigi eftir að móta betur hlutverk þessa sjóðs í samráði við hagsmunaaðila og sama má segja um þá úthlutun leigutekna sem hér er farið yfir til ríkis og sveitarfélaga. Um þetta hefur verið spurt og því hefur verið svarað. Á þessu er tekið í bráðabirgðaákvæði og mér finnst mikilvægt að halda því til haga.
Að lokum vil ég nefna það sem hér hefur verið rætt um, hvernig samfélagsleg markmið frumvarpsins geti farið saman við þau efnahagslegu, og ítreka þá bjargföstu sannfæringu mína að samfélagsleg markmið, umhverfisleg og efnahagsleg hljóta að fara saman, ef við viljum reka búskap okkar hér á landi í anda hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar sem ég hef fulla trú að við viljum gera.
Ég hef þá trú, samkvæmt því sem hér hefur komið fram í umræðunni, að menn ættu að geta sameinast um margt í frumvarpinu og ég vonast til þess að sú vinna sem er fram undan í atvinnuveganefnd verði til þess að færa hv. þingmenn nær hver öðrum í sínum sjónarmiðum.