úrræði fyrir fólk í greiðsluvanda.
Frú forseti. Ég held að við höfum einstakt tækifæri núna til að taka markvisst á þessum vanda vegna þess að umboðsmaður skuldara er til og þessi hópur er kominn þangað, að stórum hluta til. Það þarf að finna leiðir til að taka á tekjuvanda þessa hóps með öðrum aðferðum en einfaldlega bara að stefna honum í gjaldþrot. Það er engin lausn.
Ég held að við horfum hér upp á mjög stóran grundvallarvanda í íslensku samfélagi. Tölur frá Hagstofunni hafa sýnt að allt upp undir fjórðungur þjóðarinnar hefur um langt árabil átt í vandræðum með að ná endum saman. Þess vegna segi ég að við megum ekki bara einblína á skuldavandann, við horfum upp á tekjuvanda hjá stórum hópi og hann birtist þannig að jafnvel þótt við mundum leysa skuldavandann, eins og það er kallað, og koma hér á heilbrigðum lánamarkaði með viðráðanlegum kjörum og viðráðanlegu vaxtastigi mundi samt standa eftir í samfélaginu hópur fólks (Forseti hringir.) sem hefur í raun og veru ekki efni á að lifa. Á þessu þurfum við að taka. (Gripið fram í: Lækka skatta, lækka skatta.)