140. löggjafarþing — 80. fundur,  29. mars 2012.

stuðningur við ríkisstjórnina o.fl.

[11:25]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegur forseti. Mig langaði einmitt að ræða hér um fundarstjórn forseta. Ég geri athugasemd við fundarstjórn frú forseta sem ég er annars yfirleitt mjög ánægð með. Hv. þm. Magnús Orri Schram ræddi ekki fundarstjórn forseta undir þessum lið heldur fór í efnislega umræðu um það mál sem er næst á dagskrá og, það sem meira er, gerði grein fyrir meintum skoðunum og sjónarmiðum okkar sjálfstæðismanna.

Virðulegur forseti hefur verið að ræða það í hópi okkar þingflokksformanna að efnisleg umræða um þau mál sem hafa verið rædd í fyrirspurnatíma eða undir liðnum um störf þingsins eða eru á dagskrá síðar eigi ekki heima undir liðnum um fundarstjórn forseta og því varð ég fyrir vonbrigðum með hæstv. forseta, að hún skyldi ekki gera athugasemd við þetta. Ég vil bæta því við að þegar þingmaðurinn segir að hér sé komin ögurstund í lífi Sjálfstæðisflokksins vil ég snúa þeim bolta rakleiðis (Forseti hringir.) beint til þingmannsins. Ef það er ögurstund í dag hjá einhverjum er það hjá þessari vonlausu ríkisstjórn.