stuðningur við ríkisstjórnina o.fl.
Frú forseti. Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson sagði áðan að þingmaðurinn Jón Bjarnason væri eini þingmaðurinn sem hefði staðið í lappirnar í makríldeilunni, eins og hann orðaði það. Í þeim orðum felst að þegar hafi verið gerður samningur um makrílinn þar sem íslenskum hagsmunum hafi verið fórnað. Þetta er alrangt, enn sem komið er hefur enginn samningur verið gerður um makrílinn.
Þetta ætti þingmaðurinn að vita. Hitt er svo annað mál að það er brýnt hagsmunamál fyrir Ísland að það náist heildarsamningar milli Íslands, Noregs, Evrópusambandsins og Færeyja um nýtingu á makríl. (Gripið fram í.)