140. löggjafarþing — 80. fundur,  29. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[11:53]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Við vitum þá að þetta er grunnur að einhverri stjórnarskrá. Við vitum þó ekkert hvað menn eru að kalla yfir sig ef menn styðja það að þetta verði lagt til grundvallar nýrri stjórnarskrá. Það fæst ekki önnur niðurstaða en sú að formaður nefndarinnar telji að óbreytt geti tillaga stjórnlagaráðsins ekki orðið ný stjórnarskrá.

Mig langar að koma öðru atriði hér að í andsvari. Það stendur til að spyrja hvort náttúruauðlindir sem ekki eru í einkaeigu skuli lýstar þjóðareign. Er það skilningur formannsins að í þessu sambandi sé vísað til eignarréttar, að þjóðareign í þessu samhengi sé þjóðareign í eignarréttarlegum skilningi þannig að fallist menn á þessa niðurstöðu verði þær auðlindir sem vísað er til eign ríkisins? Þarna er um að ræða þveröfugan skilning borið saman við niðurstöðu stjórnlaganefndar sem einungis var (Forseti hringir.) að vísa til þeirrar hugmyndar að náttúruauðlindir Íslands væru gæði sem þjóðin hefði ríka hagsmuni af.