140. löggjafarþing — 80. fundur,  29. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[11:59]
Horfa

Frsm. meiri hluta stjórnsk.- og eftirln. (Valgerður Bjarnadóttir) (Sf) (andsvar):

Við hljótum að íhuga þessar breytingartillögur í dag, þær komu fram í dag þannig að tækifæri hefur ekki gefist fyrr. Þingstörf fara þannig fram að þetta var lagt fram í nefndinni. Það hefur ekkert verið rætt fyrr en í fyrsta skipti í gær þannig að það er varla hægt að ætlast til þess að við höfum tekið tillit til þess. [Kliður í þingsal.]