ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Ármannssyni fyrir framsöguræðu hans. Hann endaði hana á þeim orðum að þær breytingartillögur sem stjórnarmeirihlutinn gerði í nefndinni hefðu verið til bóta en framsetningin væri enn þá illa ígrunduð. Þær spurningar sem meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar fór fram með í upphafi hlutu náttúrlega ekki náð fyrir augum landskjörstjórnar og því skjali hefur nú verið breytt til bóta. Eftir stendur sá túlkunarvandi sem er í tillögunum. Þingmaðurinn talaði um að kjósendur gætu túlkað spurningarnar með mismunandi hætti. Já, ég tek undir það, en jafnframt tel ég að frjálslega verið farið með túlkanir á því sem kemur út úr þessum spurningum hjá núverandi stjórnvöldum, það er eitthvað sem verður farið frjálslega með.
Ég vil spyrja þingmanninn hvað hann telji að gerist hér (Forseti hringir.) þegar og ef þjóðin fellir tillögur stjórnlagaráðs. Hvernig ætla stjórnvöld að réttlæta þann kostnað sem til er fallinn í þessu ferli?