140. löggjafarþing — 80. fundur,  29. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[12:46]
Horfa

Lúðvík Geirsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þakka hv. þm. Birgi Ármannssyni fyrir yfirferð hans um málið.

Við erum sammála um að sú grundvallarvinna sem bíður þingsins á komandi hausti varðandi þetta frumvarp sem við ætlum að leggja fram í haust hlýtur að taka mið af því sem við erum að kalla eftir varðandi þjóðarvilja og afstöðu til einstakra þátta sem meðal annars er verið að leggja fram í þessum spurningavagni. Þess vegna skiptir máli að fá viðbrögð og svör við því inn í umræðuna núna og nýta það tækifæri sem liggur fyrir með væntanlegum forsetakosningum. Ég heyrði á máli þingmannsins að hann taldi þar upp kosti og galla og taldi það vega meira hverjir ókostirnir væru.

Ég spyr: Telur þingmaðurinn ekki að það skipti máli að geta nýtt sér hagræðið, ekki endilega fjárhagslega hagræðið sem liggur klárt fyrir upp á einhver hundruð milljóna, 200 milljónir, heldur hitt hagræðið að fá tryggingu fyrir því að við fáum (Forseti hringir.) mun fleiri til að taka afstöðu í slíkri kosningu en ella, m.a. með vísan til þess sem hann nefndi áðan um stjórnlagakosningar sem fóru fram fyrir tveimur, þremur árum?