140. löggjafarþing — 80. fundur,  29. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[12:48]
Horfa

Lúðvík Geirsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er gott að við erum sammála um að það sé þá hvort tveggja, peningalegu rökin og að vænta megi þess að mun stærri hópur landsmanna taki þátt og þjóðarviljinn komi skýrar fram með því einmitt að samnýta þessar kosningar í sumar.

Mig langar að spyrja, með vísan til þess að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lagt hér fram einar fimm breytingartillögur, sumar í nokkrum liðum, og örugglega margar ágætar: Má lesa út úr þessum tillögum breytta afstöðu frá því sem verið hefur af hálfu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í þessu máli, að með því að leggja þessar tillögur fram sé kominn fram vilji til að láta málið ná fram að ganga og menn vilji freista þess að koma þessum breytingartillögum inn í þann spurningavagn sem við erum að fara af stað með í forsetakosningunum í sumar og hér náist víðtæk og góð samstaða og vilji þingsins fái að koma fram á þessum fundi fyrir miðnætti í kvöld?