140. löggjafarþing — 80. fundur,  29. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[12:49]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Birgir Ármannsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Fyrst vil ég nefna að ég er á vissan hátt sammála því orðalagi hv. þingmanns að tala um spurningavagn, því að auðvitað ber þetta meiri svip af skoðanakönnun en eiginlegri þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem verið er að leita eftir afstöðu þjóðarinnar í einhverju sem er orðið sæmilega endanlegt eða fullbúið. Þannig að spurningavagn er ágætisorð í þessu sambandi.

Ég verð að hryggja hv. þingmann með því að eins og kemur fram í nefndaráliti okkar hv. þm. Ólafar Nordal leggjumst við enn gegn því að þetta mál nái fram að ganga. Það er okkar meginkrafa ef við getum orðað það svo. Hins vegar hefur okkur verið sagt margoft, við vitum það ekki en okkur hefur verið sagt það margoft á vettvangi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að það sé meiri hluti fyrir þessu máli í þinginu. Ef það nær fram að ganga leggjum við þessar spurningar inn í spurningavagninn vegna þess að við teljum að þetta séu atriði sem mikilvægt er að fá afstöðu fólks til ef þessi leið verður á annað borð farin.