140. löggjafarþing — 80. fundur,  29. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[15:19]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Birgir Ármannsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hér staldrar hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson við marga athyglisverða punkta. Ég deili þeirri skoðun sem kom fram í svörum hans að í löndum, a.m.k. þeim sem við berum okkur helst saman við, sé ekki efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu nema um sé að ræða sæmilega endanlega útgáfu máls. Það er búið að vinna tillöguna, hún er lögð fyrir kjósendur og hún á að vera nokkurn veginn endanleg, alveg sama hvort tillagan er að forminu til ráðgefandi eða bindandi.

Það eru hins vegar, eins og hv. þingmaður þekkir, fjölmargar aðrar leiðir til að kanna hug kjósenda, skoðanakannanir og fleira þess háttar sem hægt er að fara í með miklu minna umstangi. Það er jafnvel hægt að ná miklu nákvæmari niðurstöðu um afstöðu til einstakra mála með því að keyra spurningavagna. Reyndar talaði hv. þm. Lúðvík Geirsson tvívegis áðan um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu sem nokkurs konar spurningavagn og ég held að hann hafi hitt naglann á höfuðið í því. Það er verið að setja spurningavagn í form þjóðaratkvæðagreiðslu.

Nóg um það, hæstv. forseti. Nú vitum við auðvitað hvernig reglur núgildandi stjórnarskrár um stjórnarskrárbreytingar eru en að því gefnu að meiri hluti í þinginu eða fólk almennt sé þeirrar skoðunar að þjóðaratkvæðagreiðsla eigi að fara fram um tillögur að nýrri stjórnarskrá spyr ég hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson hvort hann sé mér ekki sammála um að það sé eðlilegast að það gerist þegar búið er að fullvinna (Forseti hringir.) tillögurnar á vettvangi Alþingis, að þá verði þetta borið undir atkvæði þjóðarinnar en ekki í miðjum klíðum.