ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Magnúsi Norðdahl fyrir ágæta ræðu. Ég kann reyndar ekki við það þegar verið er að gefa tillögum og öðrum þingmönnum einkunn en menn hafa mismunandi stíl.
Ég spyr hv. þingmann sem situr í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hvort einhver ráðgjafi hafi verið fenginn sem var hlynntur þess ferli. Kom einhver ráðgjafi til nefndarinnar sem ekki gagnrýndi þetta ferli sem verið er að fara út í?
Svo sagði hann að spurningarnar þjónuðu ekki pólitískum tilgangi. Sumir hafa einmitt haldið því fram að svo sé. Svo sagði hv. þingmaður að það ætti að leyfa þjóðinni að tala, en um hvað á þjóðin að tala þegar hent er í hana stjórnarskrá sem er ekki búið að vinna efnislega og það þrátt fyrir að komið hafi fram mjög veigamiklar athugasemdir, t.d. það sem ég hef bent á, að á 86 stöðum í stjórnarskránni er vísað til laga frá Alþingi? Réttindi barna skulu tryggð með lögum. Af hverju segja menn bara ekki hreinlega að börn skuli hafa þennan og hinn rétt þannig að stjórnarskráin sé afgerandi og þurfi ekki lög frá Alþingi til að fylla upp í stjórnarskrána?
Mig langar til að spyrja um rökleysuna í þessum spurningum. Í spurningunum er víða spurt um hluti sem eru í stjórnarskránni. Það stendur nefnilega í stjórnarskránni að auðlindir í náttúru Íslands sem ekki eru í einkaeigu séu sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Þetta stendur í nýju drögunum og svo er spurt að þessu aftur. Hvað á það að þýða eiginlega?
Síðan er í öðru lagi spurt um kirkjuskipanina. Það stendur í 19. gr.:
„Í lögum má kveða á um kirkjuskipan ríkisins.“
Þá er búið að taka þjóðkirkjuna út. Og af hverju er þá verið að spyrja fólk aftur að því hvort það eigi að taka út þjóðkirkjuna? Þannig eru allar spurningarnar.