ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Frú forseti. Ekkert verður svarið því að engin var spurningin. Hins vegar hvað varðaði hinar eðlisólíku kosningar sem blandað er saman vek ég athygli hv. þm. Vigdísar Hauksdóttur á að nákvæmlega sama orðalag er notað í niðurstöðu meiri hluta nefndarinnar og í minnihlutaáliti þeirra hv. þingmanna Birgis Ármannssonar og Ólafar Nordal. Það stendur í því ágæta skjali og ég er sammála þessari niðurstöðu þeirra:
„Það er mikið álitaefni að heppilegt sé að blanda tvennum eðlisólíkum kosningum …“ Ég er sammála þessu.