140. löggjafarþing — 80. fundur,  29. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[16:28]
Horfa

Magnús M. Norðdahl (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Enn á ný var spurningin frekar fátækleg en ég ætla að reyna að fá eitthvert efni út úr henni. Það var spurt um nýja kosningu, eðlisólíkt að blanda saman. Já, ég held að hv. þingmaður hafi útskýrt vel hvað ég átti við. Annars vegar talar þingmaðurinn um að vera með forsetakosningar og hins vegar tiltekna þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrármálefni, að þetta séu eðlisólíkar kosningar. Síðan ber þingmaðurinn fram breytingartillögu um það að inn í kosningu um stjórnarskrána sé tekið allt annað og nýtt málefni og þá verði þrjár þjóðaratkvæðagreiðslur. Það segir allt sem segja þarf um það hversu vel þingmaðurinn hefur kynnt sér lög og reglur um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslur.