ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Virðulegi forseti. Þær spurningar sem ég fór nú ekki mjög djúpt í að ræða um eru í breytingartillögum meiri hlutans. Ég sagði reyndar að ég skildi ekki alveg hvernig þær eru til komnar því að þær eru ekki til komnar, eins og ég skil málið, með djúpu samtali innan nefndarinnar um það hvort spyrja þurfi þessarar spurningar núna og hún sé svona og svona. Ég hef skilið málið þannig að slíkt hafi ekki farið fram. Þar af leiðandi erum við í svolitlu tómarúmi með það hvernig uppleggið er varðandi þessar spurningar.
Ég hef verið þeirrar skoðunar að taka eigi þá stjórnarskrá sem við búum við í dag og gera á henni þær breytingar sem við teljum nauðsynlegt að gera. Þar hef ég nefnt auðlindaákvæðið. Ég tel nauðsynlegt að skýra það og taka af allan vafa um það. Ég verð að viðurkenna að ég er ekki með patentlausnina á því en það þarf að taka umræðuna um orðalagið.
Ég hef líka sagt að ég hef verið hugsi yfir skipun dómara, hvernig það er gert. Ég tel fulla ástæðu til að skoða það til að minnka og eyða tortryggni sem mér finnst vera komin upp á síðustu árum um það hvernig dómarar eru settir í embætti.
Að öðru leyti hef ég ekki mjög mikið fram að færa varðandi breytingar á stjórnarskrá. Ég held að það sé ekkert svo mikið að þeirri gömlu nema það sem ég sagði áðan, að sífelld vöktun þarf að vera á því að hún fylgi tímans rás eða hvernig sem maður orðar það. Kaflinn um mannréttindin sem er mjög mikilvægur — ef við áttum okkur á því að þar vanti eitthvað (Forseti hringir.) inn til að skýra hlutina þá gerum við það.