ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Hæstv. forseti. Vegna þeirrar umræðu að stjórnarskránni hafi aldrei verið breytt svo neinu nemi þá er það nú reyndar svo að mannréttindakaflinn sem hv. þingmaður nefndi er auðvitað afrakstur endurskoðunar á tilteknum þáttum stjórnarskrár. Það er alls ekki langt síðan hann var settur í stjórnarskrána, það var árið 1995, svo ekki er langt síðan það var gert.
Ég held að hægt sé að ná niðurstöðu um skynsamlegt auðlindaákvæði. Í aðdraganda þessarar vinnu vann stjórnlaganefndin sem sett var á laggirnar eftir að allsherjarnefnd í heild sinni komst að samkomulagi um að skynsamlegt væri að setja hana á laggirnar — við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins stóðum að því að það var gert. Hún veltir til dæmis upp áhugaverðum hlutum hvað auðlindaákvæðið varðar. Við getum líka tekið eldri hugmyndir o.s.frv. þannig að ég held að það sé alveg hægt að ná samstöðu um slíka hluti ef maður ákveður að gera það.
Hins vegar hefur annað atriði verið mjög umdeilt og var til dæmis umdeilt í þeim stjórnarskrárnefndum sem störfuðu hér áður, og það er staða forseta og ekki síst ákvæði 26. gr. stjórnarskrárinnar. Við vitum það náttúrlega öll sem hér erum að eftir synjun forseta á fjölmiðlalögunum kristallaðist kannski ágreiningur um það ákvæði. Síðan hefur forsetinn tvívegis eftir það beitt 26. gr. Það vekur hins vegar athygli og ég fullyrði það að margir í stjórnarmeirihlutanum eru mjög ósáttir við það hvernig forsetinn beitti því ákvæði í þau skipti þótt það hafi kannski verið með dálítið öðrum hætti, oft umtalað 2004, við skulum láta það liggja á milli hluta.
Það vekur hins vegar nokkra undrun að það skuli þá ekki vera ákveðið að nýta þetta tækifæri og spyrja að því (Forseti hringir.) hvað fólki finnist um málskotsréttinn eða 26. gr. ákvæðið. Ég vildi gjarnan fá viðhorf þingmannsins til þessa.