140. löggjafarþing — 80. fundur,  29. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[17:33]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við spyrjum okkur: Af hverju er ekki spurt um þetta atriði þar sem við vitum að þetta er heitt mál eða deilumál eða hvað á að kalla það. Það eru skiptar skoðanir um þetta. Þess vegna hefði verið mjög eðlilegt að leita til þjóðarinnar um það hvort 26. gr. eigi að vera til staðar með einhverjum hætti, óbreytt eða hvernig það væri.

Meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar ákveður hins vegar að gera það ekki, telur ekki ástæðu til þess væntanlega, alla vega ekki að svo komnu máli. Það getur vel verið að það verði gert síðar, ég þekki það ekki, en ég hef ekki séð nein rök fyrir því að gera það ekki núna.

Ég held að það sé líka mikilvægt að fram komi að í gegnum árin hafa menn verið í viðræðum um breytingar á stjórnarskrá. Kjördæmaskipan hefur verið breytt og mannréttindakaflanum eins og nefnt var hér og ýmsu er búið að breyta. Það var hins vegar þannig að þegar reynt var síðast að breyta stjórnarskránni, þar á meðal var rætt um embætti forsetans og þær breytingar sem einhverjir vildu gera þar, þá mættust stálin stinn. Og það var ekki einn flokkur sem stoppaði það heldur voru það vinstri og hægri sem tókust á um hvernig þetta orð ætti að vera. Þar voru þingmenn vinstri flokkanna, sérstaklega Samfylkingarinnar, ekkert betri en þingmenn Sjálfstæðisflokksins í því að ná eða ná ekki samkomulagi um forsetaákvæðið. Það er bara staðreynd málsins og búið að upplýsa það vitanlega fyrir löngu síðan.

Það breytir því ekki, hvað sem sagan segir okkur og hvort það hafi verið auðvelt eða erfitt, að þegar menn eru komnir út í þann farveg að gera skoðanakönnun um málefni sem er mjög umdeilt og heitt, eins og 26. gr. (Forseti hringir.) fæ ég ekki skilið af hverju ekki er lagt í þá vegferð fyrst verið er að fara af stað.