140. löggjafarþing — 80. fundur,  29. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[18:06]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég óttast að það sem hér er að gerast sé það að gömlu afturhaldsflokkarnir tveir, Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn, séu að læsa saman klónum og beita margvíslegum og slóttugum ráðum til að koma í veg fyrir að fólkið í landinu fái að kjósa um þau stjórnarskrárdrög sem hér eru undir. Ég held að ekkert annað sé að gerast.

Það er rangt hjá hv. þingmanni þegar hann segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki reynt að koma í veg fyrir þessa umræðu. Það var Sjálfstæðisflokkurinn sem beitti hér afli atkvæða fyrir réttri viku til að koma í veg fyrir að þetta mál kæmist á dagskrá þótt hann vissi að það væru tímanlegar nauður á því að ná þeim fresti sem rennur út á miðnætti. Það er síðan Sjálfstæðisflokkurinn sem hefur verið í forustu málþófs hér í allan dag. Hins vegar kunna sérstakar ástæður að liggja þessu til grundvallar.

Ég hjó eftir því að í máli hv. formanns Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssonar, alveg eins og í máli allra annarra þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem hér hafa talað, er það fyrst og fremst eitt mál sem einkennir ræðuhöld þeirra og það er varðstaða um sérhagsmuni sjávarútvegsins, þeirra sem eru með auðlindina. Það er ekkert annað. Öll ræða hv. þingmanns snerist um það mál, alveg eins og ræður hans um stjórnarskrána hafa hingað til fyrst og fremst haft það að markmiði að reyna að mola undirstöður hins nýja ákvæðis sem menn eru að reyna að koma inn í stjórnarskrá um þjóðareign á auðlindum. Eins og jafnan er það sjávarauðlindin sem er undir.

Ég óttast að hér taki gömlu afturhaldsflokkarnir aftur upp varðstöðu um sérhagsmuni sægreifanna. Mér finnst það mjög miður.