ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Frú forseti. Það var ágætt hjá hv. þingmanni að koma inn á lýðræðið og það er einmitt það sem ég tel að hefði átt að ræða mun betur sem forsendu fyrir þeim spurningum sem lagðar eru upp. Tryggjum við nú það lýðræði sem við viljum? Hvernig lýðræði býr fólk við á landsbyggðinni eins og ég er að tala um og hv. þingmaður tók réttilega undir? Þá á ég bæði við einstaklingana sjálfa sem þar búa og sveitarfélög, stofnanir og fleiri úti um land sem eiga rétt á því og við eigum kröfu til þess að þau fái að taka þátt í undirbúningi og ákvarðanatöku stjórnsýslulegra athafna sem fara nánast allar fram hér. Nú þegar er lýðræðishallinn að mínu viti mjög mikill og þegar menn horfa á lýðræðið í heild eiga þeir einmitt að horfa á það í heild en ekki bara afmarkaða þætti.
Hvort það breyti einhverju að atkvæðisvægi sé breytt þá er ég ekki viss um það því að ég held að Alþingi þurfi að taka sér tak einmitt í að framfylgja þeim jafnræðishugmyndum, jafnræðiskröfum og jafnræðisreglum sem nú þegar eru bæði í stjórnarskrá og í lögum Alþingis um einstaka málaflokka sem lúta að almennri grunnþjónustu og grunnréttindum fólks óháð búsetu, og það skulum við gera fyrst.