ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Þremur spurningum hefur verið beint til forseta. Í fyrsta lagi hversu lengi þingfundur muni standa. Í upphafi þingfundar í dag var samþykkt í atkvæðagreiðslu að þingfundur gæti staðið lengur en þingsköp kveða á um og samkvæmt venju er það fram eftir kvöldi eða inn í nóttina.
Í öðru lagi hefur þeirri spurningu verið beint til forseta hversu margir séu á mælendaskrá og hversu löng sú umræða mundi verða. Samkvæmt upplýsingum ritara eru nú 10 þingmenn á mælendaskrá og munu ræður þeirra samkvæmt lauslegri áætlun taka um 180 mínútur eða þrjár klukkustundir.
Í þriðja lagi hefur verið spurt hversu lengi atkvæðagreiðsla geti staðið. Samkvæmt upplýsingum þingfundaskrifstofu er þess að vænta að atkvæðagreiðsla um tillögurnar og breytingartillögur geti tekið allt að þremur klukkustundum.