veiðigjöld.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka ráðherra fyrir ræðu hans.
Hér er verið að ræða — upp koma orð eins og eðlileg, hvað sé eðlileg ávöxtun, eðlilegt þetta og hitt. Það verður eflaust togast á um hvað sé eðlilegt þegar settar eru viðmiðanir og þess háttar.
Mér sýnist að þetta kerfi sem verið er að fara af stað með, án þess ég ætli að slá það út af borðinu einn, tveir og þrír, mér sýnist hugsunin á bak við það vera flókin og að kerfið byggi á áætlunum um hvernig hlutirnir eigi að verða þegar verið er að reikna þetta út.
Það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um er hvort það hafi verið skoðað ofan í kjölinn að fara einfaldari leið með því að fara til dæmis í gegnum skattkerfið, að setja sérstakt skattþrep eða eitthvað þess háttar. Ég held að hægt sé að ná sömu markmiðum með því að fara einfaldari leið en hér er verið að fara.
Síðan vil ég taka undir með hæstv. ráðherra að það er mjög eðlilegt að mínu viti að málið fari til atvinnuveganefndar (Forseti hringir.) og þetta sé á einni hendi en leita að sjálfsögðu álits og samstarfs yfir í aðrar nefndir eftir því sem við á.