140. löggjafarþing — 81. fundur,  30. mars 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[11:45]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Mín upplifun hefur verið sú að ríkisstjórnin hafi talið pólitískan ávinning í því fyrir sig að viðhalda ágreiningi milli flokka um málið. Þannig finnst mér hafa verið haldið á málinu á þessu kjörtímabili. Það hefur verið mér algjörlega óskiljanlegt vegna þess að við höfum ítrekað boðist til að taka þátt í þeirri vinnu að undirbúa nauðsynlegar breytingar á kerfinu.

Ég vil taka það fram í tilefni af því sem hv. þingmaður sagði, að ég tel því miður aldrei hægt að skapa fulla sátt um stjórn fiskveiða á Íslandi. Því miður, það er innbyggt í nýtingu takmarkaðra auðlinda. Það verða alltaf einhverjir ósáttir.

Varðandi pottana sem hér er talað um er það út af fyrir sig rétt að hugmyndin hjá sáttanefndinni var að byggja á tvískiptu kerfi, annars vegar með varanlegum aflahlutdeildum eða tímabundnum með samningum, og hins vegar með pottum eða því sem hér hefur verið kallað (Gripið fram í: Flokkar.) flokkar. Gallinn við frumvörpin eins og þau liggja fyrir er að í þeim er ekki tekið tillit til þess sem ég sagði í sáttanefndinni, að fastsetja þyrfti stærð pottanna eða flokkanna í hlutfalli af heildarúthlutuninni, við þyrftum að fastsetja hana til framtíðar.

Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sagði í sérstakri bókun að hann teldi að hlutfallið ætti að vera það sama og hafði gilt fram að útgáfu skýrslunnar, þ.e. magnið sem þá hafði verið til úthlutunar í byggðakvótum, línuívilnun, strandveiðunum, rækju- og skelbótum og öðrum aðgerðum. Fastsetja ætti það hlutfall til langrar framtíðar. Í millitíðinni hefur ekki bara verið stóraukið við það sem hefur verið í þessum pottum heldur er nú komið fram frumvarp um að bæta enn í og loka þessu ekki. Það er til mikils skaða. Það er til mikils skaða að gengið sé á þá sem eru í stóra kerfinu og síðan eigi veiðigjaldið fyrst og fremst að leggjast á þá.