140. löggjafarþing — 81. fundur,  30. mars 2012.

veiðigjöld.

658. mál
[11:48]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég hygg að rétt sé hjá hv. þm. Bjarna Benediktssyni að náttúrlega verði seint náð fram einhverri allsherjarsátt um allt landið og miðin hvað varðar sjávarútveg á Íslandi. Trúlega mun fyrr botnfrjósa í ákveðnum stað en það gerist. Það er engu að síður mikilvægt að reyna að ná sem best utan um þetta.

Ég legg áherslu á það, af því hv. þingmaður gerði óvissuna mikið að umtalsefni, óvissu um að menn mundu fjárfesta o.s.frv., að þess þá heldur er mikilvægt að reyna að ljúka þessum málum. Það er ekki seinna vænna að leggja niður línurnar og ganga frá því hvernig þetta verður til frambúðar þannig að menn geti þá hætt að vera andvaka á nóttunni yfir því hvað kunni að vera í vændum. Þá hafa menn það. Ég er reyndar ósammála því sem kom fram hjá hv. þingmanni í andsvari að ekki væri gengið frá þessu með tiltölulega skýrum hætti. Það er verið að gera það og fastsetja hlutdeildarskiptinguna milli þessara tveggja meginflokka, en það er önnur saga.

Það er rétt sem fram kom í máli hv. þingmanns að vandinn er auðvitað meðal annars sá að staða fyrirtækjanna er mjög mismunandi. Hún verður það alltaf. Við getum svo spurt okkur að því af hverju sum þeirra eru jafnskuldsett og raun ber vitni, af því að nú bera menn aðallega skuldirnar fyrir sig varðandi það hvað fyrirtækin þoli í greiðslu veiðigjalds, því hinu verður ekki í móti mælt að afkoman í rekstrinum og framlegðin úr honum þessi missirin við núverandi aðstæður er gríðarlega góð. Jú, sum fyrirtækjanna eru skuldug, skuldugri en önnur. Það er vandamál. Þess vegna væri að mörgu leyti æskilegt að geta brotið þetta enn meira upp en þó er gert hér. Það er strax veruleg framför að því að aðskilja hina sveiflukenndu afkomu í uppsjávarveiðum annars vegar og miklu stöðugri rekstur bolfiskvinnslunnar hins vegar.

Við getum ekki bara verið að leita að samnefnara hins minnsta. Það verður auðvitað ekki merkilegt veiðigjald greitt, auðlindarenta greidd, ef miða á upphæðina við skuldugasta og lakast rekna fyrirtækið í landinu. Þangað getum við ekki farið. Við verðum að finna út hvað sé þó ásættanlegt og hvað öll almennt rekin fyrirtæki ráða við.