veiðigjöld.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir það svar sem hann veitti við andsvar mitt. Það er mikilvægt að stóra myndin, stóra samhengið eins og hann ræðir, er nákvæmlega í takt við þetta frumvarp. Ég skal taka út „nákvæmlega“ af því að ég sé að þingmaðurinn brosir. Það er „að mestu leyti“ í takt. Vafalaust verðum við aldrei með nákvæmlega sömu stefnu.
Tökum dæmi. Hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson skrifaði með hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni grein sem birtist í Morgunblaðinu 17. mars sl. Það verð ég að segja þeim þingmönnum til hróss að þeir eru þeir fyrstu sem notuðu orðið „nýtingarleyfi“ í staðinn fyrir „nýtingarsamning“. Þetta orð og þessi hugsun þeirra fer beint inn í þetta frumvarp. Við tölum um nýtingarleyfi en ekki nýtingarsamninga. Ýmsir fræðingar á vinnslustigi þessa frumvarps hafa bent á að hér sé sem sagt stefna Framsóknarflokksins, hugmynd ykkar um nýtingarleyfi sett inn í frumvarpið.
Veiðileyfagjaldið er í stefnu Framsóknarflokksins og sett hér fram og útskýrt til hvers eigi að nota, líkt og boðað er hér. Það er talað um hóflegt veiðileyfagjald. Það er auðvitað stóra atriðið.
Framsóknarmenn segja nefnilega líka í þessari grein, með leyfi forseta:
„Við leggjum til að greinin greiði áfram veiðigjald. Gjaldið verði hóflegt og tengt afkomu greinarinnar.“
Það er nákvæmlega eins og sett er fram í frumvarpinu og hv. þm. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, sagði: Það verður að virða það að hér er það sett inn.
Við sjáum í fylgigögnum með frumvarpinu hvernig til dæmis uppsjávarveiðiskipin hefðu ekki borgað krónu í fimm, sex ár sem er ósköp eðlilegt þegar engin afkoma var í greininni vegna lítils afla. Svo kemur hann upp núna þegar mikið er veitt.
Þetta finnst mér meginkostir í þessu þannig að þegar öllu er á botninn hvolft, virðulegi forseti, er ótrúlega mikill samhljómur meðal allra flokka í þinginu um þetta frumvarp og okkar bíður það verkefni að leiða það til lykta í sem mestri sátt.