staðfesting samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2012.
Herra forseti. Hér er leitað heimildar Alþingis til þess að staðfesta samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2012. Þeir voru gerðir í London 14. október síðastliðinn.
Í samræmi við ráðgjöf ICES, Alþjóðahafrannsóknaráðsins, og fyrri ákvörðun aðila um nýtingarstefnu til lengri tíma var heildaraflamarkið ákveðið 833 þúsund lestir. Þá verður að vekja eftirtekt á því, herra forseti, að það er veruleg lækkun frá undanförnum árum en heildaraflamarkið í fyrra var 988 þús. lestir og árið 2010 1.483. þús. lestir þannig að hér er um talsverða minnkun að ræða. Um það ríkir hins vegar samþykki allra aðila og það er í samræmi við vísindalegar niðurstöður og varkárni.
Veiðiheimildirnar skiptast í sömu hlutföllum og verið hefur frá árinu 2007. Í Íslands hlut koma þannig 120.868 þús. lestir. Þá get ég þess líka, herra forseti, að gerðir hafa verið hefðbundnir samningar um gagnkvæmar veiðar Íslands annars vegar og hins vegar Rússlands, Noregs og Færeyja að hefðbundnum hætti.
Ég legg til að að lokinni umræðu um þessa þingsályktunartillögu verði henni vísað til hv. utanríkismálanefndar.