140. löggjafarþing — 81. fundur,  30. mars 2012.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 19/2012 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

609. mál
[16:18]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Herra forseti. Ég legg til að tillagan fari til efnahags- og viðskiptanefndar ef eitthvert eða þá að hv. utanríkismálanefnd sendi hana þangað til umsagnar. Þetta er mál sem varðar efnahags- og viðskiptanefnd greinilega, hún hefur á því betri tök og meiri þekkingu en til dæmis utanríkismálanefnd sem fjallar um allt aðra þætti.

Í ályktuninni er bara talað um starfskjör starfsmanna og það er greinilegt að Evrópusambandið hefur ekki sent einhverjar leynilöggur til Íslands til að kanna af hverju hér varð hrun. Hún hefur til dæmis ekki kannað raðeignarhald og krosseignarhald og lánveitingar milli fyrirtækja, sem ég hef tekið á í frumvarpi um gagnsæ hlutafélög því að ég tel að það mikla eigið fé íslenskra fyrirtækja sem byggðist upp hjá íslenskum fyrirtækjum og náði hámarki í sjö þúsund milljörðum, eins og fram kom í erindi ríkisskattstjóra hjá Félagi löggiltra endurskoðenda fyrir ári síðan, en hvarf niður í núll ári seinna og var svo mínus 1.400 milljarðar ári seinna. Það var í árslok 2007, 2008 og 2009.

Ég vil spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvort einhver vinna sé í gangi við að segja okkar erlendu samstarfsmönnum og vinum frá hruninu á Íslandi, að hér hafi orðið hrun. Þeir ættu kannski að kíkja á af hverju það gerðist.