140. löggjafarþing — 82. fundur,  16. apr. 2012.

ávarpsorð forseta.

[13:00]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Ég býð þingmenn velkomna til þings eftir páskahlé og vona að þeir hafi átt góða daga með fjölskyldum sínum og við störf í kjördæmum. Nú hefst sá hluti 140. löggjafarþings sem í þingsköpum heitir vorþing. Mikilvægt er að við alþingismenn skipuleggjum þingstörfin vel svo að okkur megi auðnast að standa við starfsáætlun þingsins og ljúka störfum á tilsettum tíma.