tvíhliða viðskiptasamningar við Kína og fleiri ríki.
Virðulegi forseti. Það er ágætt að heyra að hæstv. utanríkisráðherra ætlar að ræða þessi mál við utanríkisviðskiptaráðherra Kína þegar hann kemur til landsins. Ég held að það sé mjög mikilvægt að Íslendingar haldi áfram að ræða við þessa stórþjóð um viðskipti. Ég hvet hæstv. ráðherra til að reyna að ýta frekar við því að umræðurnar fari í þann farveg að leiði til einhvers konar niðurstöðu og lausnar. Ég hef haft grun um að það sé lítill áhugi í utanríkisráðuneytinu við að klára þennan samning vegna þessara viðræðna við Evrópusambandið. Það er gott ef það er rangt hjá mér.
Hins vegar vil ég segja um viðræður við Bandaríkin að það er ágætt að hæstv. utanríkisráðherra geri þá einhvern tímann grein fyrir þeim viðræðum þannig að við getum fengið að vita svart á hvítu um hvað deilurnar hafa staðið milli landanna fyrst viðræðurnar hafa farið fram og ljóst að landbúnaðurinn stendur eitthvað í mönnum. Ég man ekki til þess, það getur verið að um sé að kenna misminni eða minnisleysi hreinlega, að fjallað (Forseti hringir.) hafi verið um það sérstaklega í þinginu.