auðlindagjöld.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður spyr mig út í nákvæmar tæknilegar tölur sem ég get ekki svarað á þessari stundu, (Gripið fram í: … forsendur …) ég get hins vegar farið síðar og fundið nákvæmar út úr þessum tölum.
Aðalatriðið er þetta: Eins og kynnt hefur verið í drögum að orkustefnu fyrir Ísland á orkuauðlindin að skila þjóðinni auðlindarentu eins og aðrar auðlindir þjóðarinnar. (Gripið fram í.) Við eigum að setja orkunýtingarstefnu, við eigum að setja auðlindastefnu sem lýtur að því að þjóðin fái sanngjarna auðlindarentu af þeim (Gripið fram í.) sem nýtir auðlindina (Gripið fram í: … Landsvirkjunar.) og hvernig við útfærum það í orkugeiranum er mikilvægt að setja fram. En ég hef lagt (Gripið fram í.) á það áherslu að það sé með svipuðum hætti og í sjávarútvegi og að við eigum að horfa til Noregs þegar við ákveðum hvernig við (Forseti hringir.) drögum arð af auðlindum þjóðarinnar. (Heyr, heyr.)