140. löggjafarþing — 83. fundur,  16. apr. 2012.

áframhaldandi þróun félagsvísa.

616. mál
[17:09]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Skynsamlegt er að skyggnast um áður en menn hyggjast fara í ferð eða leiðangur og félagsvísar eru hluti af því að gá til allra hliða hvort einhvers staðar sé vantrygging eða oftrygging. Staða heimilanna er sömuleiðis ákveðið vandamál, búið er að setja núna tugi eða hundruð milljarða í að laga stöðu heimilanna og samt hefur ekki verið kannað hver staðan er. Ný könnun Seðlabankans byggir að meginstofni til á upplýsingum frá árinu 2007, fimm ára gömlum upplýsingum. Frumvörp um slíka könnun daga uppi í hv. efnahags- og viðskiptanefnd, sem hv. fyrirspyrjandi stýrir, og ég vildi gjarnan fá að vita hvernig þeir félagsvísar stæðu.