140. löggjafarþing — 84. fundur,  17. apr. 2012.

störf þingsins.

[13:35]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Frú forseti. Ég ætla að gera að umtalsefni ummæli sem formaður Framsóknarflokksins, hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, lét falla í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi. Ég veit að formaðurinn er fjarstaddur í dag en hann hefur góðfúslega gert ráðstafanir til að formaður þingflokksins hlaupi í skarðið og svari fyrir það sem hér er um að ræða.

Í umræðum í Kastljósi í gærkvöldi sagði formaður Framsóknarflokksins að EFTA-dómstóllinn væri mjög pólitískur dómstóll, dómstóll sem leitaðist við að ná pólitískum markmiðum Evrópusamrunans. Ég tel að það séu mjög alvarleg ummæli um sjálfstæðan dómstól sem við Íslendingar eigum undir og erum aðilar að. Hér er um að ræða formann í stjórnmálaflokki í einu af EFTA-ríkjunum og hann segir í raun að EFTA-dómstóllinn gangi erinda Evrópusambandsins. Raunar held ég að ef eitthvað er sé það einmitt öfugt. Tilvera EFTA-dómstólsins er undir því komin að EFTA sé áfram til og að Ísland sé þar en ekki í ESB en það er annað mál.

Ég tel að þetta séu alvarleg ummæli vegna þess að þau verða ekki skilin öðruvísi en að við getum ekki átt neitt undir þessum sama dómstóli í okkar málum. Það leiðir okkur að næstu spurningu: Er okkur þá sætt innan EFTA ef skera á úr deilumálum sem kunna að koma upp á vettvangi EFTA fyrir dómstóli sem við getum ekki litið á sem hlutlausan dómstól í okkar málum, alveg burt séð frá öllum umræðum? Nú bið ég Framsóknarflokkinn um að halda öllum umræðum um hugsanlega aðild að ESB fyrir utan þetta mál því að það snýst ekki um það. Það snýst um hvort við sættum okkur við að það sé dómstóll fyrir EFTA-ríkin sem útkljái deilumál sem koma upp (Forseti hringir.) þar eða ekki. Hvað hyggst Framsóknarflokkurinn gera til að fylgja þessum málatilbúnaði formannsins eftir? Eigum við að hætta þátttöku í EFTA? Er það það sem Framsóknarflokkurinn boðar (Forseti hringir.) með þessum ummælum formannsins?

(Forseti (ÁRJ): Enn biðst forseti velvirðingar á því að klukkan í borðinu virkar ekki en hún virkar í borðinu hjá forseta þannig að tímamæling fer þar fram.)