140. löggjafarþing — 84. fundur,  17. apr. 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[14:37]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ekki man ég hvort þetta er taka tvö eða þrjú hjá hæstv. ríkisstjórn við að reyna að gera breytingar á fyrirkomulagi Stjórnarráðsins. Við síðustu atrennu var hæstv. ríkisstjórn að minnsta kosti að hluta til gerð afturreka með áform sín í málinu vegna þess einfaldlega að ríkisstjórnin hafði ekki pólitískan meiri hluta fyrir þeim breytingum á Alþingi. Við munum að ætlunin var að breyta lögum varðandi atvinnuvegaráðuneyti, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti og önnur ráðuneyti en hæstv. ríkisstjórn hafði ekki vald á því máli.

Nú er hæstv. ríkisstjórn komin með þessa þingsályktunartillögu á móti vilja sínum í rauninni því það var aldrei ætlunin að vera í þessari stöðu. Það var hins vegar Alþingi sem knúði þetta fram á sínum tíma.

Nú vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hver er staða málsins? Er hér um að ræða eiginlega stjórnartillögu? Hefur hæstv. ráðherra gengið úr skugga um að þetta mál sé eins og það er í pottinn búið? Hefur hæstv. ráðherra gengið úr skugga um að það njóti meirihlutastuðnings á Alþingi? Er einróma stuðningur við þetta mál af hálfu stjórnarliða?